Sérverkefni flutninga
Inn- & útflutningur
Í sérverkefnum treystir þú Jónum: Við rúllum inn sviðsbúnaðinum, klárum tollpappírana og tryggjum að þín frakt komist á leiðarenda – hvort sem um er að ræða stórtónleika, kvikmyndaverkefni eða ráðstefnur. Hratt, örugglega, hvar og hvenær sem er.


Bílaiðnaður
Jónar Transport sérhæfa sig í flutningum á varahlutum ökutækja og vinnuvéla. Við bjóðum heildarlausnir fyrir bæði hefðbundna og flókna flutninga — alltaf með hagkvæmustu og öruggustu flutningsleiðina.
Neytendavörur
Frá tískuvarningi til leikfanga – Sérhæfðar lausnir fyrir síbreytilegan neytendamarkað


Hitastýrðir flutningar
Hitastýrðir flutningar tryggja örugga meðhöndlun á viðkvæmum vörum eins og t.d lyfjum, matvælum og snyrtivörum.
Hátækniiðnaður
Heildarlausnir okkar á flutningi hátæknivöru með sérsniðnum lausnum sem koma til móts við sterkar kröfur markaðarins. - Við tryggjum að hátæknivörur skili sér örugglega á áfangastað


Tónlistar- og kvikmyndaiðnaðurinn
Frá Justin Bieber til Guns N' Roses, Fast and the Furious til Game of Thrones — við höfum áratuga reynslu af flóknum verkefnum fyrir tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn.
Við sjáum um flutningana — svo þú getur einbeitt þér að listinni, framleiðslunni og sýningunni.
Viðburðir
Áratuga reynsla af flutningum fyrir flókin verkefni og viðburði — listasýningar, ráðstefnur, hátæknisýningar og sérhæfð fagviðburði.


Lyf og líftækni
Alltaf í réttu ástandi – á réttum tíma - Við tryggjum að lyf og líftæknivörur skili sér í réttu magni, í réttum gæðum og á réttum tíma — hverju sinni.
Við sérhæfum okkur í flutningum fyrir lyfja- og líftækniiðnaðinn með áherslu á öryggi, rekjanleika og vandaða meðhöndlun á viðkvæmum sendingum.
Tískuiðnaður
This copy should complement the main headline, make the value concrete, and handle your customer's objection. Keep it clear and simple.


Annað
Þegar að kemur að fjölbreyttni í atvinnnulífinu hafa Jónar Transport marga fjöruna sopið. Frá jarðvegsborum fyrir orkuiðnaðinn til þyrluflugvéla – frá litlum og öflugum örgjörvum til leikfanga fyrir börn. Við flytjum fjölbreyttan farm með öryggi, fagmennsku og áreiðanleika. Þetta er Jónar
Biddu Jón um tilboð – við finnum besta flutninginn
Segðu okkur hvar varan fer af stað, hvert hún á að fara og hvað hún vegur. Jón sér um restina: velur hagkvæmustu leiðina, reiknar kostnaðinn og sendir þér skriflegt tilboð samdægurs.
Afhverju að velja Jón?
- Jónar á bak við tjöldin - Sérfræðingar Jónanna halda utan um ljósa- og hljóðbúnað, svið, búninga og pappírsflóðið sem fylgir stórtónleikum, kvikmynda- og ráðstefnustarfi.
- Fraktleiga á augabragði - Tengslanetið okkar nær frá Keflavík til Katmandu; ef þarf leigjum við heila flugvél eða rúmlega til að koma búnaðinum á réttan stað á réttum tíma.
- Jón vaktar allan sólarhringinn - Hjá Jónum er engin lokunartími – við fylgjum sendingunni í rauntíma og grípum inn ef eitthvað hreyfist úr takt.
- Svar strax - Sendu línu, Jón byrjar á næstu mínútu og lætur þig vita þegar hlutirnir eru komnir á hreyfingu.
Fróðleikur um sendingar
Hvað flokkast sem sérverkefni?
Sérverkefni geta verið margvísleg til dæmis eins og: Tónleikar - kvikmyndaiðnaður- auglýsingaiðnaður- ráðstefnur- sýningar - fraktleiguflug- fjölþáttaflutningar- listaverkaflutningar- yfirstærðaflutningar- (onboard courier) - flutningar erlendis (crosstrade) - Gagnaver svo eitthvað sé nefnt. Við erum til staðar allan sólarhringinn, eins og þörf krefur.
Hafið þið reynslu í flutningi sem tengjast stórtónleikum, kvikmyndaiðnaði og auglýsingaiðnaðnum?
Já áratuga reynsla en hjá okkur starfa sérfræðingar sem halda utan um umfangsmikil sérverkefni sem tengjast m.a. tónleikum, kvikmyndaiðnaði, auglýsingaiðnaði, ráðstefnum og sýningum hér á landi. Við höfum sterkt tengslanet sem býður upp á margvíslega þjónustu svo sem fraktleiguflug, stórflutninga sem oftar en ekki fylgir þessum iðnaði.
Need technical skills to use RiseVerse?
No, it’s designed to be user-friendly for all, with an easy interface and support team to help with any issues.
How often are updates released?
We release updates weekly, automatically providing subscribers with the latest features and improvements.
Can I change my subscription?
Yes, you can change your plan anytime from your dashboard or by contacting support.