Vörumiðstöð
Tollafgreiddar vörur
Hverjir nota þjónustuna
Þjónustan getur leyst úr vanda þeirra sem búa við plássleysi og vilja skera niður kostnað. Vörumiðstöð Samkipa, í gegnum Jóna Transport, geta annast lagerhald og dreifingu innflytjanda eða framleiðanda að hluta til eða að öllu leyti.
Allur kostnaður verður breytilegur
Í flestum tilfellum þegar vörueigandi sinnir eigin lagerhaldi og dreifingu eru kostnaðarliðir tengdir þessum rekstrarþætti að mestu fastir. Sem dæmi má nefna húsnæðiskostnað,launakostnað, og kostnað vegna lyftara og annara tækja er tengjast slíkri starfssemi. Með því að nýta sér þjónustu Samskipa er kostnaður við lagerhald og dreifingu orðinn breytilegur, annars vegar háður birgðastöðu á hverjum tíma og hinsvegar bundinn vöruflæði í gegnum starfsemina. Þannig hefur vörueigandi möguleika á því að hámarka hagkvæmni með markvissri vörustjórnun.
Afgreiðsla á vörum
Afgreiðsla fer þannig fram að vörueigandi sendir afhendingarbeiðni til Vörumiðstöðvar Samskipa á faxi, tölvupósti eða EDI þar sem tilgreint er hvaða vörunúmer skal afhenda, í hvaða magni og hver sé móttakandi vöru.
Afgreiðsla miðast við að afhentar séu dreifieiningar eða heilir pallar.
Öflug öryggisvarsla er í geymslunni og er gæsla þar allan sólarhringinn. Lagt er mikið upp úr því að gæta fyllsta öryggis í vörumeðhöndlun og geymslu vöru.
Hafa samband
Tollvörugeymslan er opið frá 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Símanúmer er 458-8407

