Vörumiðstöð
Ótollafgreiddar vörur
Árið 1996 stofnuðu Jónar Transport tollvörugeymslu sem var starfrækt allt til ársins 2008 þegar móðurfélagið, Samskip, tók formlega við rekstri þess.
Hlutverk geymslunnar er að annast geymslu á ótollafgreiddum vörum, sem hafa komið til landsins, tollafgreiða þær síðan í heilu lagi eða í hlutaúttektum skv. óskum innflytjanda.
Mikil áhersla er lögð á örugga og persónulega þjónustu.
Kostir þess að geyma vöru í tollvörugeymslu
Innflytjandi getur frestað greiðslu aðflutningsgjalda og virðisaukaskatts á vörum sínum.
Innflytjandi greiðir aðeins gjöld og virðisauka af þeirri vöru sem hann leysir út hverju sinni.
Innflytjandi getur haft samskipti sín við tollvörugeymslu ýmist með símtali, tölvupósti, myndsendi eða í gegnum tengingu við Internetið (EDI).
Birgi getur fengið birgðastöðu, úttektaryfirlit o.fl. með einföldum hætti.
Kostir innflytjanda eru til að mynda
- Launakostnaður gæti lækkað við birgðahald, akstur, tollskjalagerð og þá umsýslu er snýr að tollayfirvöldum.
- Kostnaður minnkar við rekstur lagerhúsnæðis og bifreiða.
- Tvímælalaust lægri fjármagnskostnaður þegar ekki þarf að leysa alla sendinguna út í einu.
- Losna við förgun á rusli og flutningsumbúðum
- Öflug öryggisgæsla
Varan er geymd við bestu skilyrði
- Upphitað húsnæði með ýmsum stærðarflokkum af hillum.
- Kæli og frystiaðstaða
- Rakaskápar fyrir tóbak
Hafa samband
Tollvörugeymslan er opin frá 8:30 til 16:30 alla virka daga.

