Vörumiðstöð

Vörumiðstöð

Vörumiðstöð leysir vandann við vörustjórnunina

Vörumiðstöðin er góður kostur fyrir þá sem búa við plássleysi og vilja losna við rekstrarkostnað sem fylgir lagerhaldi og dreifingu. Hægt er að geyma tollafgreiddar eða ótollafgreiddar vörur.

Hagkvæmni og markviss vörustýring

Með því að nýta sér vörumiðstöð Samskipa, í gegnum Jóna Transport, getur innflytjandinn aukið hagkvæmni sína og gert vörustjórnunina markvissari. Kostnaður innflytjanda við húsnæði, bíla, lyftara, og laun minnkar og verður í réttu hlutfalli við birgðastöðu og vöruflæði á hverjum tíma.

Afgreiðsla á vörum úr vörumiðstöð

Eigandi vörunnar sendir afhendingarbeiðni á faxi, með tölvupósti eða á EDI formi, þar sem tilgreint er hvaða vörunúmer skal afhenda, í hvaða magni og hver eigi að taka við vörunni. Starfsmenn Samskipa sjá síðan um að koma vörunni á réttan stað á réttum tíma.

Hafa samband

Vörumiðstöð

Vörumiðstöðin er opin frá 8:30 til 16:30 alla virka daga.





Erlendar skrifstofur


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu: