Á erlendum skrifstofum Jóna Transport náum við að skapa meiri sveigjanleika og getum þannig eflt þjónustuna við viðskiptavini þannig að vöruflæði frá birgjum til móttakenda verði ein heild.
Á skrifstofum okkar erum við með eigið starfsfólk, íslenskt og erlent, sem gjörþekkir allar aðstæður og býr jafnframt yfir mikilli þekkingu á þeim viðskiptaháttum sem tíðkast í hverju landi.
Tilkoma erlendu skrifstofanna hefur jafnframt skapað meiri nálægð bæði við sendendur og móttakendur, sem gerir öll samskipti hraðari og skilvirkari. Þetta kemur fram í styttri afhendingartíma sendinga og aukinni hagkvæmni á öllum sviðum.
Þannig er hægt að koma í veg fyrir óþarfa milliliði erlendis, sem leiðir af sér lægri afhendingar-, meðhöndlunar- og pappírskostnað.
Jónar Transport eru með skrifstofur í Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Hollandi, Noregi og Svíðþjóð.
Nánari upplýsingar um skrifstofurnar er hægt að nálgast í fellivalmyndum á vinstri hlið vefsíðunnar.

