Dagatal 2010
Í lok árs 2009 var ákveðið að fara óhefðbundna leið við gerð dagatals fyrir árið 2010. Útkoman varð heimskort Jóns sem vakti gríðarlega lukku. Daníel Freyr Atlason og félagar á auglýsingastofunni Jónsson & Le'macks eiga heiðurinn af hugmyndinni að heimskortinu. Biblían greinir frá því að í upphafi hafi Guð skapað himinn og jörð en í þessu tilviki var það JL auglýsingastofa sem skapaði heiminn úr hráefni, varningi og hlutum sem táknrænir þykja fyrir hvert land eða heimsálfu. Ari Magg ljósmyndari myndaði síðan „veröldina alla“ að sköpun lokinni. Hér var mjög fagmannlega að verki staðið að öllu leyti.
Sumir halda, fljótt á litið, að heimskort Jóna hafi verið búið til tölvu í Photoshop eða einhverjum álíka myndaforritum. Svo er alls ekki.
Þetta er allt saman raunveruleg uppsetning frá grunni og ljósmynd að verki loknu. Já, það þurfti einmitt að flytja á vettvang sendibílsfarm af vodka til að búa til Rússland og bretti af kóki til að hanna Bandaríki Norður-Ameríku! Stórveldin tvö eru dæmi um augljósu tengingarnar í myndinni, sem og að Corona bjór og taco skeljar tákna Mexíkó, þorskur táknar Ísland, ísbjörn táknar Grænland, olía táknar Noreg og Nokia farsímar tákna Finnland.
Það vandast hins vegar málið þegar á til dæmis að greina Afríku í einstök ríki eftir öllum því korni, baunum og hnetum sem mynda álfuna!
Veggspjaldið vann síðan til verðlauna fyrir besta veggspjaldið á uppskeruhátíð Ímarks, félags íslensks markaðsfólks, á Hilton Reykjavík Nordica á föstudagskvöldið 5. mars. Andri Már Helgason, markaðsstjóri Jóna, veitti sigurlaununum, lúðri, viðtöku fyrir dagatal Jóna 2010.
Andri Már segir að það hafi komið þægilega á óvart að heimskortið skyldi fara alla leið í samkeppninni, enda hafi öll veggspjöldin fimm, sem tilnefnd voru til verðlauna, verið góð og vel gerð.
Keppnin var því hörð en það lá auðvitað fyrir að aðeins einn úr hópnum stæði uppi sem sigurvegari og Jónar hömpuðu sem sagt lúðrinum eftirsótta að leikslokum. Það fylgir sögunni að Jónsson & Le'macks voru framleiðendur þriggja veggspjalda af fimm, sem tilnefnd voru. Tölfræðilega voru því umtalsverð líkindi á að stofan myndi hreppa lúðurinn!
Eftirfarandi verkefni börðust um verðlaun í flokki veggspjalda:
| Veggspjöld | Auglýsandi | Framleiðandi |
| Bjarnfreðarson | Bjarnfreðarson ehf. | Sagafilm |
| Eymundsson - Glæpafaraldur | Eymundsson | Jónsson & Le'macks |
| Eymundsson - Erlend dagblöð | Eymundsson | Jónsson & Le'macks |
| Heimskort Jóna | Jónar Transport | Jónsson & Le'macks |
| SIA hátíðin - Do It Yourself | SIA | Hvíta húsið |
Með því að smella á myndina hér fyrir neðan má sjá dagatalið í stærri útgáfu.
Starfsfólk auglýsingastofunnar Jónsson & Le'Macs setut saman myndband af tilurð dagatalsins. Á þessu myndbandi má sjá hversu gífurleg flókið verk þetta var.


