Jón - í hverri höfn
Fréttir

Fréttaflutningur Jóna

2.2.2003

Fyrsta tölublað 2003 af fréttabréfi Jóna Transport er komið út. Það ber nafnið Fréttaflutningur og þar segir af stöðugri markaðssókn fyrirtækisins, nýjum samningi Jóna við flutningsmiðlunarfyrirtækið Traffic BT sem tryggir enn hraðari sendingar frá Evrópu. Þar er einnig sagt frá nýrri skrifstofu Jóna í Svíþjóð en flutningar til og frá Svíþjóð hafa aukist verulega á síðustu mánuðum og misserum.

Í blaðinu er einnig sagt frá erlinum í flugvöruhúsi Jóna og einum stærsta vínlager landsins sem er í vöruhóteli Jóna.

Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins skrifar leiðara og segir meðal annars: "Árið 2002 var ár breytinga hjá Jónum Transport. Guðmundur Halldórsson lét af starfi framkvæmdastjóra og við tók Kristján Pálsson. Jón Þór Hjaltason lét af starfi starfandi stjórnarformanns. Við stjórnarformennsku tók Knútur G Hauksson. Jón Þór situr áfram í stjórn félagsins.

Á síðasta ári var unnið hart að því að skerpa áherslur í innri uppbyggingu fyrirtækisins þannig að þjónusta við viðskiptavini yrði skilvirkari. Í október var innleitt nýtt stjórnskipurit með það að markmiði að gera Jóna Transport að öflugra sölu- og markaðsfyrirtæki.

Stjórnunarleg ábyrgð og skyldur voru einnig gerðar skýrari með afkomueiningum; flugdeild, sjódeild og innanlandsdeild.

Sölu og markaðsdeild er ný deild og er tilgangur hennar m.a. að efla stýringu í sölumálum sem áður fór fram í gegnum mismunandi deildir. Lögð verður áhersla á að efla tengslin við viðskiptavini með öflugu og persónulegu sölu og þjónustustarfi.

Til að efla þjónustustigið enn frekar var jafnframt á síðastliðnu ári einnig sett af stað vinna í sambandi við að skilgreina þjónustustaðla og ýmsar verklagsreglur sem hefur og mun skila sér í enn betri þjónustu gagnvart viðskiptavinum."

Athygli sá um efnisöflun í blaðið, sá um umbrot þess og hafði umsjón með útgáfunni.

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica