Jón - í hverri höfn
Fréttir

Jónar Transport taka upp þjónustuskilmála Sambands íslenskra kaupskipaútgerða

31.8.2003

Jónar Transport hafa ákveðið að þjónustuskilmálar Sambands íslenskra kaupskipaútgerða (SÍK) taki til allrar innlendrar þjónustu félagsins við viðskiptavini þess vegna vöruhúsa og landflutninga, að því marki sem slík þjónusta fellur ekki undir flutningsskilmála félagsins. Þetta gildir frá og með 1. ágúst 2003.

Í skilmálum SÍK er að finna ítarleg ákvæði um ábyrgð skipafélaga og dótturfélaga þeirra gagnvart viðskiptavinum sínum, m.a. að því er varðar ábyrgðartíma, fjárhæðir bóta, ábyrgðartakmarkanir o.fl. Gildistaka skilmálanna er tvímælalaust til hagsbóta fyrir viðskiptavini Jóna Transport og réttaröryggi viðskiptavina er nú betur tryggt en áður. Skilmálarnir eru samræmdir og þar er með afdráttarlausum hætti kveðið á um réttindi og skyldur fyrirtækisins og viðskiptavina þess.

Það skal tekið fram að SÍK leitaði eftir því við Samkeppnisstofnun hvort þjónustuskilmálarnir uppfylltu ákvæði samkeppnislaga. Samkeppnisráð heimilaði notkun skilmálanna og taldi að þeir stuðluðu að betri þjónustu en takmörkuðu hana ekki.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um þjónustuskilmála SÍK á heimasíðu Jóna Transport, www.jonar.is og á heimasíðu Sambands íslenskra kaupskipaútgerða, www.kaupskip.is.

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica