Tilkynning frá Umhverfisstofnun
Breytt fyrirkomulag við tollafgreiðslu raf- og rafeindatækja frá 1. janúar 2012.
Umhverfisstofnun vill vekja athygli á breytingu á lögum nr. 55/2003 sem Alþingi samþykkti sl. vor. Frá og með næstu áramótum er tollafgreiðsla raf- og rafeindatækja háð því að innflytjandi sé aðili að skilakerfi.
Jafnframt er öllum framleiðendum og innflytjendum raf- og rafeindatækja skylt að vera skráðir í skráningakerfi innflytjenda og framleiðenda hjá Umhverfisstofnun.
Framleiðendur og innflytjendur skulu við innflutning á raf- og rafeindatækja tilgreina leyfisnúmer sitt í reit nr. 14 í tollskýrslu, frá og með 1.1.2012. Umhverfisstofnun úthlutar leyfisnúmerum í kjölfar skráningar í skráningarkerfið.
Innflytjendur og framleiðendur geta falið því skilakerfi sem þeir eru aðilar að, að sjá um skráninguna í skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda, en það hefur í för með sér lægri kostnað en ef aðilar skrá sig beint sjálfir. Í því tilviki skal skilakerfið sjá um að skila einnig inn aðildarsamningi framleiðanda og innflytjandi til Umhverfisstofnunar.
Gjald fyrir skráninguna er 6.000,- kr. og árgjald er 3.000,- kr., en sjái skilakerfi um skráninguna lækkar skráningargjaldið í 2.000,- kr. og árgjaldið í 1.000,- kr.
Umhverfisstofnun vill jafnframt hvetja aðila til að kynna sér VII. kafla laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, sem fjallar um raf- og rafeindatækjaúrgang. Nánari upplýsingar veita Sigríður Kristjánsdóttir, deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun, og Valur Klemensson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Nánari upplýsingar um skilakerfin má sjá á www.rrskil.is og www.samskil.is.
Tilkynning frá Umhverfisstofnun til Jóna Transport.
Tilvísun í reglugerð um raf- og rafeindatækjaúrgang.

