Jón - í hverri höfn
Fréttir
Mynd af Arnarfellinu

Seinkun á komu Arnarfells (1146ARN)

29.11.2011

Seinkun er á komu Arnarfells, skipi Samskipa, í þessari viku sökum djúprar veðurlægðar sem það lenti í um helgina. Skipið fór seinni partinn í dag frá Kollafirði í Færeyjum og er væntanlegt til Reykjavíkur kl. 04:00 aðfaranótt fimmtudags.

Þessi seinkun mun líklega valda töfum á afhendingu vöru í þessari viku en gerðar hafa verið ráðstafanir til að draga úr áhrifum seinkunarinnar.

  • Bæta á við aukavöktum í vöruhúsi (losun) og er gert ráð fyrir að öll losun verði langt komin, ef ekki lokið, á hádegi á föstudag.
  • Bæta á við bílum í akstur til að flýta fyrir afhendingu á vörum til viðskiptavina sem hafa óskað eftir heimakstri.

Eins og fyrr segir er vonast til að þessar aðgerðir dragi úr áhrifum seinkunarinnar en þó má gera ráð fyrir miklu annríki og biðjum við viðskiptavini okkar að taka tillit til þess.

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica