Jón - í hverri höfn
Fréttir
Maersk gámalosun

Skortur á gámum gæti truflað innflutning á vetrar- og jólavörum frá Asíu

23.6.2010

Jónar Transport hvetja viðskiptavini sem flytja vörur sjóleiðis frá Asíu til að vera snemma á ferðinni í ár og panta vetrar- og jólavörurnar fyrr en venjulega til að vera öruggir með að ná þeim til Íslands í tæka tíð. Ástæðan er sú að skortur er á gámum í Asíu vegna gríðarlegrar aukningar á útflutningi frá þessu svæði. Einnig stefnir nú í að sjóflutningar milli Asíu og Evrópu aukist um 23% í ár miðað við árið í fyrra, en spáð hafði verið innan við 10% aukningu.

Það eykur síðan enn á vandann að í kjölfar alþjóðlegu efnahagskreppunnar í lok árs 2008 drógu alþjóðleg skipafélög úr flutningaframboði í Asíu til að mæta minni eftirspurn. Mörgum flutningaskipum var lagt og gámaframleiðsla dróst verulega saman. Nú, þegar eftirspurn eftir flutningum hefur aukist jafn skyndilega og mikið og raunin ber vitni, stefnir í umfram eftirspurn eftir gámaplássi frá Asíu.

Í sjóflutningum milli Asíu og Evrópu eru Jónar Transport m.a. í samstarfi við Maersk, stærsta skipafélag heims. Maersk flytur vörurnar frá Asíu til hafna í Evrópu þar sem Jónar Transport taka við og koma þeim á áfangastað. Hjá Maersk, sem og öðrum alþjóðlegum skipafélögum, hefur verið gripið til ýmissa ráða til að mæta því ástandi sem nú blasir við. Flutningaskip sem búið var að leggja hafa verið tekin aftur í notkun og annast gámaflutninga frá höfnum á austurströnd Bandaríkjanna og í Suður-Ameríku yfir til Asíu. Maersk hefur einnig stóraukið framleiðslu á gámum en þrátt fyrir þessar aðgerðir telur félagið stefna í mikla umframeftirspurn eftir flutningum frá Asíu það sem eftir lifir árs.

„Við hjá Jónum beinum þeim eindregnu tilmælum til viðskiptavina okkar sem flytja inn vörur frá Asíu að hefja jólaundirbúninginn snemma í ár til þess að lenda ekki í tímahraki,“ segir Gísli Sigurgeirsson, deildarstjóri sjódeildar hjá Jónum.  Hann bendir á að venjulega hafi verið miðað við að það geti tekið 6 vikur frá því að vara er afhent flutningsaðila á hafnarbakka í Asíu þar til hún sé komin til Íslands. Nú sé alls ekki hægt að treysta því að sá tímarammi standist þegar sjóflutningar frá Asíu eru annars vegar.

„Því er mikilvægt að menn hafi varann á og panti vörur og flutning frá Asíu tímanlega.“




Senda grein






Flutningsfyrirmæli

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica