Fréttir
Opna Jónar Transport golfmótið á Nesvellinum
Sunnudaginn 6. júní var opna Jónar Transport mótið haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Mikil aðsókn var í mótið þar sem til leiks voru skráðir 111 aðilar en í mótum sem þessu komast yfirleitt ekki fleiri að en 120.
Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við keppendur en mikið rigndi fyrri part dags. Þrátt fyrir vætusamt veður luku 85 keppendur við allar 18 holurnar.
Úrslit voru sem hér segir.
Höggleikur án forgjafar
| Vilhjálmur Árni Ingibergsson | 74 högg |
| Gunnar Hansson | 75 högg |
| Ólafur B. Ólafsson | 76 högg |
Höggleikur með forgjöf
| Jónatan A. Örlygsson | 63 högg |
| Skafti Harðarson | 69 högg |
| Gunnar Hansson | 71 högg |

