Jón - í hverri höfn
Fréttir

Jónar stuðla að skapandi hugsun grunnskólabarna

30.4.2007

"Jónar Transport styðja verkefnið okkar rausnarlega með því að flytja tæki og fleira hingað til lands frá Vísindasafni Minnesota í Bandaríkjunum. Jónar hafa styrkt okkur áður á þennan hátt. Fyrirtækið og starfsmenn þess eiga því þakkir skildar," segir Lani Yamamoto, heimspekingur, rithöfundur og einn aðstandenda Hugmyndasmiðjunnar.

Árleg vinnustofa Hugmyndasmiðjunnar í skapandi námi grunnskólabarna hefst í dag í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur og lýkur með sýningu á verkum þátttakenda næskomandi sunnudag, 6. maí, kl. 14:00-17:00. Þarna koma saman grunnskólakrakkar og kennarar til að kynnast grunnhugmyndum í rafmagnsverkfræði, forritun, eðlisfræði og hönnun. Það gera þau með því að taka í sundur hvunndagsfyrirbæri á borð við ryksugur, föt, raftæki og húsgögn og búa til úr þeim nýja hluti með því að blanda saman ólíkum einingum, rafhlöðum, örtölvum og fleiru. Jónar Transport styrkja Hugmyndasmiðjuna og stuðla þannig að skapandi hugsun krakka í grunnskólanum.

Hugmyndasmiðjan er tilraunastofa þar sem grunnskólabörn, kennarar, listamenn og vísindamenn flétta saman leik og rökhugsun, tölvunarfræði, hönnun og smíðar. Þannig er ýtt undir frjóa og skapandi hugsun við lausn viðvangsefna og vandamála. Þetta er sem sagt bæði þjálfun í að hafa bæði gagn og gaman.

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica