Jón - í hverri höfn
Fréttir

Öflugt snjóruðningstæki fyrir Keflavíkurflugvöll

25.1.2007

Jónar Transport fluttu á dögunum til landsins gríðaröflugt snjóruðningstæki fyrir Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar. Það leysir af hólmi snjóruðningstæki sem verið hefur samfellt í notkun í hálfa öld!

Starfsmenn á skrifstofu Jóna Transport í Norfolk önnuðust þetta verkefni ytra og sáu um að koma farminum í skip áleiðis til Íslands undir lok desember. Jónamenn sáu um að tollafgreiða farminn hér heima og afhenda eigendum sínum á Keflavíkurflugvelli.

Nýja snjóruðningstækið er framleitt í Wisconsin í Bandaríkjunum og kostaði um 25 milljónir króna. Það er með drif á öllum hjólum með 700 hestafla Catepillar-vél, hvorki meira né minna. Verið er að setja tækið saman á Keflavíkurflugvelli og starfsmenn eru býsna eftirvæntingarfullir að sjá hvernig það reynist þegar það verður tekið í notkun, segir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar.

Trukkur_1Flugþjónustudeildin gerir út 35 tæki í Keflavík og mörg eru komin til ára sinna. Elsta snjóruðningstækið verður sem sagt fimmtugt núna á árinu 2007 og þrjú önnur tæki vantar tvö ár upp á fimmtugsafmælið. Þau voru því í notkun mestallan þann tíma sem bandaríski herinn hafði bækistöð á Miðnesheiði! Þessi ótrúlega góða ending tækjanna á Keflavíkurflugvelli sýnir og sannar að þau hafi verið vel hönnuð og smíðuð í upphafi. Í framhaldinu hefur meðferð starfsmannanna á flugvellinum verið til hreinnar fyrirmyndar og viðhaldið sömuleiðis.

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica