Jón - í hverri höfn
Fréttir

Jónar Transport opna sína fjórðu skrifstofu erlendis

18.12.2002

Í janúar 2003 opna Jónar Transport eigin skrifstofu í Varberg í Svíþjóð sem verður fjórða skrifstofa félagsins erlendis. Fyrir eru eigin skrifstofur reknar í Hollandi, Danmörku og Bretlandi.


Tilgangur og markmið með stofnun skrifstofunnar er að efla og styrkja þjónustuna í safnsendingum í sjófrakt frá Svíþjóð.
Tilkoma erlendu skrifstofanna hefur stuðlað að betri þjónustu við viðskiptavini heima og erlendis. Meiri nálægð skapast við sendendur og móttakendur sem gerir öll samskipti hraðari og skilvirkari.
Þannig verður flutningsferlið ein heild undir stjórn eins aðila sem stuðlar að sterkari tengslum í aðfangakeðjunni.

Við minnum viðskiptavini á að gefa upp nýtt heimilisfang til sinna birgja í Svíþjóð frá og með 1. janúar næstkomandi. Athugið að þetta á eingöngu við um sjóflutninga.
Starfsmaður Jóna Transport í Svíþjóð er Lisa Sivertson.

Heimilisfang nýju skrifstofunnar í Varberg er:

Jónar Transport - Varberg (Sweden)
Hamnomraadet

P.O. Box 161,
S-432 24 Varberg
Sweden
Sími: +46 340 646 676
Fax: +46 340 64 66 77
Netfang: jonarvag@jonar.is
Tengiliður: Lisa Sivertson
Netfang: lisa@jonar.is

Senda grein





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica