Jón - í hverri höfn

Fréttir

Creditinfo

Framúrskarandi fyrirtæki 2011 - 21.2.2012

Jónar Transport hafa hlotið viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki 2011“ frá Creditinfo. Í viðurkenningunni felst að fyrirtækið hefur staðist ítarlega greiningu og fengið bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati miðað við ýmsar lykiltölur og breytur Lesa meira
 
Merki Umhverfisstofnunar

Tilkynning frá Umhverfisstofnun - 11.12.2011

Breytt fyrirkomulag við tollafgreiðslu raf- og rafeindatækja frá 1. janúar 2012.
Umhverfisstofnun vill vekja athygli á breytingu á lögum nr. 55/2003 sem Alþingi samþykkti sl. vor. Frá og með næstu áramótum er tollafgreiðsla raf- og rafeindatækja háð því að innflytjandi sé aðili að skilakerfi.

Lesa meira
 
Mynd af Arnarfellinu

Seinkun á komu Arnarfells (1146ARN) - 29.11.2011

Seinkun er á komu Arnarfells, skipi Samskipa, í þessari viku sökum djúprar veðurlægðar sem það lenti í um helgina. Skipið fór seinni partinn í dag frá Kollafirði í Færeyjum og er væntanlegt til Reykjavíkur kl. 04:00 aðfaranótt fimmtudags.

Lesa meira
 
Klukkan færð til um klukkutíma

Klukkan færð til um klukkutíma - 1.11.2011

Lönd í Evrópu færðu klukkuna aftur um eina klukkustund um síðustu helgi, en þá tók vetrartími gildi. Þetta þýðir að tímamunur á milli Íslands og Vestur-Evrópu er nú ein klukkustund í stað tveggja og sami tími er núna á Íslandi og Bretlandi.
 
Þrír nýir þjónustufulltrúar

Þrír nýir þjónustufulltrúar - 3.10.2011

Þrír þjónstufulltrúar hafa bæst í starfsmannahópinn það sem af er árinu 2011. Tæplega er reyndar hægt að telja einn þeirra nýjan starfsmann í hefðbundnum skilningi því sá vann hér á árum áður en snýr nú á nýjan leik á „gamla“ staðinn.

Lesa meira
 
Merki íslensku sjávarútvegssýningarinnar

Íslenska sjávarútvegssýning 2011 - 19.9.2011

Á fimmtudaginn kemur hefst íslenska sjávarútvegssýningin í tíunda sinn. Þessar sýningar hafa verið haldnar á þriggja ára fresti frá árinu 1984 og lofa stjórnendur sýningarinnar áhugaverðum nýjungum þetta árið. Jónar Transport verða sem fyrr með bás (nr. E31) á sýningunni og bjóðum við öllum þeim sem áhuga hafa á að koma við og spjalla við starfsfólk okkar.

Lesa meira
 
Sumarmynd

Breyting á opnunartíma - 2.9.2011

Í dag tekur við hefðbundinn föstudagsopnunartími á skrifstofu Jóna Transport. Skrifstofan lokar nú kl. 16:30 á föstudögum eins og aðra virka daga. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á upplýsingasíðu Jóna Transport.

Lesa meira
 
Svifið í sólsetri

Vængjaþytur yfir hálendinu í þágu kvenna - 30.6.2011

Svifvængjakonurnar Áslaug Rán Einarsdóttir og Anía Hafdís Björnsdóttir ætla að leggja hálendi Íslands undir væng og fót og í júlímánuði. Þær svífa og ganga til styrktar UN Women á Íslandi og gefa ferðalaginu yfirskriftina: Við viljum gefa konum byr undir báða vængi. Áður svifu þær um veröldina og nutu m.a. stuðnings Jóna Transport til fararinnar.

Lesa meira
 
Boeing 747-800F

Boeing: Fjöldi fraktflugvéla mun tvöfaldast á næstu 20 árum - 21.6.2011

Samkvæmt nýrri spá bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing má gera ráð fyrir því að fjöldi fraktflugvéla muni tvöfaldast á næstu 20 árum. Frá þessu er greint á vef Flightglobal en Boeing gerir ráð fyrir því að fjöldi fraktflugvéla fari frá því að vera um 1.760 sem nú er í 3.500 á næstu 20 árum.

Lesa meira
 
Waco

Jónar Transport fengu þrefalda viðurkenningu WACO - 31.5.2011

Jónar Transport fengu á dögunum öll þrenn verðlaunin sem í boði voru fyrir starfsemi í flugfrakt á þingi WACO, alþjóðlegra samtaka flutningsmiðlara sem fyrirtækið á aðild að (World Air Cargo Organisation, stofnuð 1973).

Lesa meira
 
Maersk risaskip

Maersk Line semur um smíði 10 risaskipa fyrir Asíuflutninga - 25.5.2011

Danska félagið Maersk Line hefur samið við skipasmíðastöðvar í Suður-Kóreu um að smíða tíu 400 metra löng skip til að nota í flutningum milli Asíu og Evrópu. Þetta verða langstærstu skip veraldar, hönnuð fyrir að taka allt að 18.000 tuttugu feta gáma í ferð!

Lesa meira
 
Eldgosið í Grímsvötnum

Vegna eldgossins í Grímsvötnum - 23.5.2011

Í gærmorgun (22. maí) var tekin sú ákvörðun að loka Keflavíkurflugvelli vegna mikils öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum. Lokunin tók gildi kl. 8:30 og gildir enn (23. maí - kl. 09:15). Sú ákvörðun var tekin, samkvæmt almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, út frá upplýsingum um öskuspá sem fengin var frá bresku veðurstofunni (Met Office) en slíkar spár voru einnig notaðar í Eyjafjallagosinu í fyrra. Lesa meira
 
Framúrskarandi fyrirtæki 2010

Framúrskarandi fyrirtæki 2010 - 16.3.2011

Jónar Transport hafa hlotið viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki 2010“ frá Creditinfo. Í viðurkenningunni felst að fyrirtækið hefur staðist ítarlega greiningu og fengið bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati miðað við ýmsar lykiltölur og breytur.

Lesa meira
 
Inco_terms

Nýir Incoterms viðskiptaskilmálar - 10.1.2011

Í haust voru kynntar breytingar á alþjóðlegu vöruflutningaskilmálunum „Incoterms 2000“. Nýju skilmálarnir bera nafnið „Incoterms 2010“ en af nöfnum skilmálanna má sjá að engar breytingar hafa verið gerðar á þessum skilmálum síðustu 10 árin. Þörf á endurnýjun var því orðin töluverð.

Lesa meira
 
Forsíða fréttabréfs Jóna Transport 2010

Fréttaflutningur - 16.11.2010

Nýtt fréttabréf hefur litið dagsins ljós. Í bréfinu er fjallað um ýmis áhugaverð mál sem komið hafa inn á borð starfsmanna Jóna Transport síðustu mánuðina. Má þar meðal annars nefna nýsköpunarverkefni Hugmyndasmiðjunnar, nýjungar í hitastýrðum umbúðum og flókna þungaflutninga. Einnig er komið inn á þær hræringar sem áttu sér stað í Eyjafjallajökli í vor og viðbrögð við þeirri ógn. Ýmsar fleiri fréttir eru í bréfinu.
Lesa meira
 
Mynd af Big Ben í Bretlandi

Vetrartími í Evrópu - 31.10.2010

Vetrartími var tekinn upp í Evrópu í nótt og er tímamunurinn á milli Íslands og landanna í Vestur-Evrópu ekki lengur tveir tímar heldur einn klukkutími. Bretar eru nú á sama tíma og við. Vetrartíminn gildir til síðasta sunnudags í mars en þá tekur sumartíminn aftur við en þá er tíminn færður aftur fram um eina klukkustund. Viðskiptavinum er því bent á þennan mismun þegar hafa þarf samband við Evrópubúa.
 
Kvennafrídagurinn

Kvennafrídagurinn 2010 - 25.10.2010

Í tilefni af kvennafrídeginum í dag, 25. október, þá munu Jónar Transport gera konum kleift að ganga út frá störfum sínum kl. 14:25, og taka þátt í kröfugöngu. Af þessum sökum má gera ráð fyrir skertri þjónstu en reynt verður eftir fremsta megni að viðhalda þjónustustigi fyrirtækisins. Til að auðvelda samskipti við fyrirtækið er viðskiptavinum bent á bein símanúmer starfsmanna.

 
Inco_terms

Nýir Incoterms viðskiptaskilmálar - 21.10.2010

Á dögunum voru kynntar breytingar á alþjóðlegu vöruflutningaskilmálunum „Incoterms 2000“. Nýju skilmálarnir bera nafnið „Incoterms 2010“ en af nöfnum skilmálanna má sjá að engar breytingar hafa verið gerðar á þessum skilmálum síðustu 10 árin. Þörf á endurnýjun var því orðin töluverð.

Lesa meira
 
Boeing 787 Dreamliner

Í þjónustu hennar hátignar, Boeing 787 - 7.9.2010

Ný þota af gerðinni Boeing 787 Dreamliner var á dögunum við æfingar á Keflavíkurflugvelli og Jónar Transport komu örlítið við sögu í verkefninu. Varahluti vantaði frá verksmiðjunum í Bandaríkjunum og Jónar fluttu þá til landsins, fljótt og vel að vanda.

Lesa meira
 
Sumarmynd

Breyttur opnunartími - 31.8.2010

Fyrr í sumar var gerð sú breyting á opnunartíma skrifstofu Jóna Transport að á föstudögum lokaði skrifstofan 30 mín. fyrr en aðra daga. Um var að ræða tímabundna breytingu. Frá og með næsta föstudegi verður opnunartíminn sá sami og verið hefur, þ.e. alla virka daga verður skrifstofan opin frá kl. 8:30 til kl. 16:30. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á upplýsingasíðu Jóna Transport.

 
Opna Jóna Transport golfmótið

Úrslit opna Jóna Transport golfmótsins - 11.8.2010

Opna Jóna Transport mótið fór fram á Keilisvelli í Hafnarfirði, laugardaginn 7. ágúst. Veður var með ágætum, logn en gekk á með rigninu. Mikil þátttaka var í mótinu en á föstudeginum fyrir mót var þegar orðið fullt. Það komust því færri að en vildu. Langt er síðan síðasta opna Jóna Transport mótið var haldið og því ánægjulegt að sjá jafn mikla og góða þátttöku og raun bar vitni. Til að skoða úrslit mótsins er nóg að smella á "Lesa meira" takkann.

Lesa meira
 
Golfsamband Íslands

Opið golfmót Jóna Transport - 4.8.2010

Á laugardaginn kemur verður opið golfmót Jóna Transport á Keilisvellinum í Hafnarfirði. Golfmótið er svokallað "Open" golfmót sem þýðir að allir geta tekið þátt. Skráning fer fram á vefsíðu Golfsambands Íslands. Upplýsingar um mótið má finna á vefhluta Keilis hjá sambandinu.

 
Sumarmynd

Breyttur opnunartími í sumar - 29.6.2010

Jónar Transport hafa ákveðið að loka skrifstofum sínum kl. 16:00 á föstudögum í sumar. Sumaropnunartími verður því frá kl. 8:30 - 16:00 á föstudögum en frá kl. 8:30 - 16:30 aðra virka daga.

Lesa meira
 
Maersk gámalosun

Skortur á gámum gæti truflað innflutning á vetrar- og jólavörum frá Asíu - 23.6.2010

Jónar Transport hvetja viðskiptavini sem flytja vörur sjóleiðis frá Asíu til að vera snemma á ferðinni í ár og panta vetrar- og jólavörurnar fyrr en venjulega til að vera öruggir með að ná þeim til Íslands í tæka tíð. Ástæðan er sú að skortur er á gámum í Asíu vegna gríðarlegrar aukningar á útflutningi frá þessu svæði. Einnig stefnir nú í að sjóflutningar milli Asíu og Evrópu aukist um 23% í ár miðað við árið í fyrra, en spáð hafði verið innan við 10% aukningu.

Lesa meira
 
Dragon Boat Festival

Frídagar í Kína og Taiwan - 14.6.2010

14. til 16. júní er almennir frídagar í Kína en þá er "Dragon Boat Festival". Árið 2008 var frídagurinn tekinn upp aftur en allt fram til þess tíma hafði hann ekki verið skráður sem almennur frídagur. 16. júní er einnig frí í Taiwan af sömu ástæðu. Skrifstofur umboðsaðila Jóna Transport í fyrrgreindum löndum verða því lokaðar þessa daga. Starfsemi hefst að nýju 17. júní.

 
Cargo flugvél

Flug í eðlilegt horf - 18.5.2010

Flugsamgöngur eru nú að komast í eðlilegt horf og er gert ráð fyrir að vélar Icelandair Cargo verði á áætlun frá og með morgundeginum. Þetta getur þó breyst með stuttum fyrirvara eins og Íslendingum ætti að vera orðið ljóst eftir atburði síðustu vikna.

 
Eldgos

Áhrif eldgossins á flugsamgöngur - 10.5.2010

Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og þeirra áhrifa sem það hefur á flugsamgöngur til og frá landinu, viljum við vekja athygli viðskiptavina á eftirfarandi.

Lesa meira
 
Hollenski fáninn

Frídagur í Hollandi - 5.5.2010

5. maí er almennur frídagur í Hollandi en þennan dag á ári hverju halda Hollendingar upp á lok hersetu Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni. Frá árinu 2000 hefur þessi dagur verið almennur frídagur. Skrifstofur Jóna Transport í Rotterdam verða af þessum sökum lokaðar en munu opna samkvæmt venjulegum skrifstofutíma fimmtudaginn 6. maí.

 
Skjár með dagatali 2010

Dagatal Jóns á skjáborðið - 30.4.2010

Nú er búið að færa dagatal Jóna Transport á rafrænt form og gefst öllum sem vilja, tækifæri á því að nota það sem skjáborðsmynd á tölvunni sinni. Dagtal Jóna Transport hefur vakið verðskuldaða athygli en í mánuðinum vann það til verðlauna á uppskeruhátíð Ímarks, félags íslensks markaðsfólks.

Lesa meira
 
Beatrix drottning Hollands

Hollenskur og danskur frídagur - 29.4.2010

30. apríl er almennur frídagur í Hollandi en dagurinn á rætur sínar að rekja til fyrrverandi drottningar Hollands, Wilhelminu. Undanfarin 60 ár hefur þessi dagur verið tileinkaður drottningu Hollands jafnvel þó núverandi drottning eigi afmæli í janúar. Einnig er frídagur í Danmörku en þar halda menn upp á Kóngsbænadag. Vegna þessara frídaga eru skrifstofur Jóna Transport í Hollandi og í Danmörku lokaðar en munu opna aftur á mánudagsmorgun.

 
Ása - The Flying Effect

Vængjaþytur á Indlandi og í Nepal - 7.4.2010

Þær eru ekki venjulegir ferðamenn og skrá heldur ekki ferðasöguna sína eins og fólk flest. Fyrsta myndbandið úr heimsreisu kvenna með byr undir vængjum er komið á YouTube!

Lesa meira
 
Ludur, lúður, 2009, Lúður 2009

Jónar hlutu lúður fyrir heimskortið á Ímark-hátíðinni! - 8.3.2010

Jónar Transport og auglýsingastofa fyrirtækisins, Jónsson & Le'macks, unnu til verðlauna fyrir besta veggspjaldið á uppskeruhátíð Ímarks, félags íslensks markaðsfólks, á Hilton Reykjavík Nordica á föstudagskvöldið var, 5. mars. Andri Már Helgason, markaðsstjóri Jóna, veitti sigurlaununum, lúðri,  viðtöku fyrir dagatal Jóna 2010, sem viðskiptavinir fyrirtækisins fengu í byrjun ársins. Verðlaunaverkefnið er með öðrum orðum hið rómaða heimskort sem vakti strax verðskuldaða athygli og umtal þeirra sem fengu það.

Lesa meira
 
dagatal 2010, dagatal, 2010

Dagatal, dægradvöl og gestaþraut! - 19.1.2010

Jónar Transport hafa fengið sterk og fín viðbrögð við dagatalinu sínu frá viðskiptavinum og öðrum viðtakendum. Fregnir berast meira að segja af því að nánast fastur liður sé þegar gestur kemur í hús, þar sem dagatal Jóna hangir á vegg, að heimskortið góða dragi strax að sér athygli og kveiki líflegar og spekingslegar vangaveltur í upphafi fundar sem upphaflega var tilefni heimsóknarinnar!
Lesa meira
 
Aníta - The Flying Effect

Stuðningur við frjálsar og fljúgandi konur - 6.1.2010

Jónar Transport styðja merkilegt verkefni tveggja ungra kvenna sem seldu veraldlegar eigur sínar á Íslandi og héldu út í heim til að vekja athygli á frelsisbaráttu kvenna. Jónar eru fyrsti stuðningsaðili verkefnisins, sem er í samstarfi við UNIFEM, þróunarsjóð Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna.

Lesa meira
 

Jólaáætlun Arnarfells og Helgafells - 23.11.2009

Jólaáætlun Arnarfells og Helgafells er sem hér segir: Helgafell 0949HEG lestar í viku 50 í öllum áætlunarhöfnum (IMM,RTM,CUX,VAG,AAR) Samskipa og er í Reykjavík miðvikudaginn 16.12.2009. Arnarfell 0950ARN lestar í viku 51 í öllum áætlunarhöfnum Samskipa og er í Reykjavík þriðjudaginn 22.12.2009 og fer frá Reykjavík á miðnætti fimmtudaginn 01.01.2010. Helgafell 0951HEG fer frá Reykjavík föstudaginn18.12.2009 og lestar í viku 52 ( bíður í Cuxhaven 23.-28.12.2009) í öllum áætlunarhöfnum Samskipa og er í Reykjavík sunnudaginn 03.01.2010. Nánari upplýsingar um lokunartíma má sjá í þessari grein.

Lesa meira
 

Aukin þjónusta frá USA - 22.10.2009

Vegna fárra skipaferða beint frá USA til landsins hafa Jónar Transport ákveðið að bjóða fasta áætlun á lausavöruflutningum í sjófrakt á 2. vikna fresti frá Norfolk gegnum Rotterdam til Reykjavíkur.

Lesa meira
 

Spennir frá S-Kóreu til Sultartanga - 19.10.2009

Risavaxinn spennir kom í hlað Sultartangavirkjunar að morgni 15. október eftir margra vikna ferðalag á sjó og landi frá Suður-Kóreu á vegnum Jóna Transport fyrir Landsvirkjun. Hann vóg hvorki meira né minna en 88 tonn og var yfir fimm metrar á hæð á vagni ET ehf., sem flutti hann af hafnarbakka í Reykjavík á áfangastað. Það þurfti því að gera ýmsar ráðstafanir til að flutningurinn gengi vel fyrir sig, meðal annars var Höfðabakkabrúnni lokað um stund á meðan flutningabíllinn fór yfir hana, á vinstri akrein, áleiðis að Sultartanga.

Lesa meira
 

Nýr samstarfsaðili í flugi í Frakklandi - 8.6.2009

Jónar Transport hafa ákveðið að skipta um flugsamstarfsaðila í Frakklandi.

Mikil vinna var lögð í að skoða nýja aðila í Frakklandi og erum við þess fullviss að nýi aðilinn, Gravelau Dachser Group, er afar góður kostur og höfum því gert við þá samning um framtíðarsamstarf í flugfrakt, frá og með þessari viku.

Lesa meira
 

Breyttur opnunartími í Húsi B - 2.3.2009

Athygli viðskiptavina er vakin á því að frá og með 2. mars 2009 verður breyting á opnunartíma í vöruhúsi B og á gámavelli.

Lesa meira
 

Íslenskur ullarfatnaður til Bretlands - 15.1.2009

Samstarf hefur tekist milli Bylgjunnar, Landflutninga - Samskipa og Jóna Transport að safna íslenskum ullarfatnaði á landinu og senda til þurfandi eldri borgara á Bretlandi sem búa við erfiðar aðstæður vegna kulda.

Lesa meira
 

Tilkynning til viðskiptavina vegna notaðra ökutækja - 8.1.2009

Gefin hefur verið út reglugerð 1144/2008 um endurgreiðslu á vörugjaldi og virðisauka af ökutækjum til erlendrar endursölu. Reglugerð þessi nær til sölu fyrirtækja jafnt sem einstaklinga og verður í gildi til og með 31.desember 2009

Lesa meira
 

Breytingar á siglingaáætlun - 3.11.2008

Í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem dunið hafa yfir þjóðina og minnkandi vöruinnflutnings til landsins hefur siglingaáætlun Samskipa til og frá Íslandi verið endurskoðuð og munu þrjú skip annast flutninga félagsins á þessari leið, í stað fjögurra áður. Lesa meira
 

Tímabundnar breytingar á þjónustustöðlum - 10.10.2008

Frá og með mánudeginum 13. október nk. verða tímabundnar breytingar á eftirfarandi þjónustustöðlum Jóna Transport.

Lesa meira
 

Nýtt fréttabréf Jóna Transport - 25.6.2008

Nýtt fréttabréf hefur litið dagsins ljós en í því má finna umfjöllun af því helsta í starfsemi fyrirtækisins. Helst er að nefna umfjöllun um breytta siglingaáætlun frá Bretlandi sem leiðir til helmingi styttri flutningstíma auk umfjöllunar um sérstakt verkefni sem starfsmenn Jóna tóku þátt í á síðasta ári.

Lesa meira
 

Jónar Transport flytja í nýtt húsnæði í Norfolk! - 11.4.2008

Starfsmenn Jóna Transport í Norfolk undirbúa flutning á skrifstofuhaldi fyrirtækisins og að morgni mánudags 14. apríl opna þeir nýja skrifstofu Jóna. Engar aðrar breytingar verða á starfsemi fyrirtækisins í Norfolk.

Lesa meira
 

Breyttar reglur í Hollandi - 1.4.2008

Þann 6. apríl næstkomandi munu taka gildi breytingar á tollalögum sem kveða á um að allir þeir aðilar sem sjá um tollskýrslugerð, hvort sem það eru einstaklingar eða flutningsmiðlarar, verði að hafa þar til gert umboð frá sendanda til að geta gert skýrslur í þeirra nafni.

Lesa meira
 

Aukin trygging, betri trygging - 15.2.2008

Jónar Transport, í fararbroddi sem fyrr, bjóða nú viðskiptavinum sínum farmtryggingar í þremur þrepum sem við nefnum A, B og C. Þær gilda yfir nær alla vöruflokka aðra en búslóðir og bifreiðar.

Lesa meira
 

Betri þjónusta og styttri afhendingartími frá Bretlandi - 7.2.2008

Frá og með 14. febrúar nk. mun afhendingartíminn frá Bretlandi styttast verulega, vegna breytingar á siglingaáætlunum. Samskip siglir frá þeim tíma á fimmtudagsmorgnum frá Immingham og verða skipin þá tilbúin til losunar í Reykjavík á mánudagsmorgnum.

Lesa meira
 

Tilkynning um skipulagsbreytingar í tollvörugeymslu og vöruhýsingu - 7.2.2008

Vörumiðstöð Samskipa mun taka yfir rekstur þessarar þjónustu og þar með hefur verið stigið það skref til fulls sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið.
Sömu starfsmenn verða áfram við störf sem koma að daglegri starfsemi þjónustunnar í viðskiptaþjónustu Vörumiðstöðvar.

Lesa meira
 

Fréttatilkynning frá starfsmönnum Jóna Transport - 13.12.2007

Starfsmenn Jóna Transport færa MND-félaginu jólagjöf - hálfa milljón króna og ætla að gera enn betur á árinu 2008 með því að safna áheitum og gjöfum í þágu MND-samtakanna

Lesa meira
 

Frestun á hertum kröfum - 3.12.2007

Fimmtudaginn 30. nóvember ákváðu fulltrúar embættis Tollstjórans í Reykjavík, í samvinnu með hagsmunaaðilum, að fresta gildistöku kröfugerðar um aukin skil á gögnum í útflutningi. Kröfugerðin sem taka átti gildi þann 1. desember hefur því verið frestað til 1. febrúar næstkomandi.

Lesa meira
 

Nýir þjónustustaðlar um skil á hleðslu- og flutningsfyrirmælum - 13.11.2007

Vegna mikilla breytinga á alþjóðlegu lagaumhverfi hefur tollgæslan hafist handa við verkefni sem miðar að því að tryggja að útflutningur frá Íslandi tefjist ekki í innflutningshöfnum.

Lesa meira
 

Vetrartími tekur gildi í Evrópu - 26.10.2007

Klukkunni verður seinkað um eina klukkustund í Evrópu næstkomandi sunnudag, 28. október.

Helstu viðskiptalönd íslendinga á meginlandi Evrópu verða því einni klukkustund á undan okkur en Bretland verður á sama tíma.

Lesa meira
 

Jónar á hæsta tindi Afríku, Kilimanjaro! - 18.9.2007

Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Jóna Transport, framkvæmdi það sem flestir aðrir láta sig dreyma um. Hann gekk á Kilimanjaro núna í september og horfði yfir Afríku af hæsta tindi álfunnar, í um 5.890 metra hæð yfir sjávarmáli. Ferðin var ákveðin á árinu 2006 og þá hófst skipulagningin með tilheyrandi æfingum. Það þýðir víst lítið að leggja í svona nokkuð nema vel á sig kominn og Kristján kom sér í form meðal annars með því að ganga aftur og aftur á Esjuna, tvisvar til þrisvar í viku í sumar! Í Esjugöngu geta menn hins vegar aldrei þjálfað sig í að takast á við það sem mestum erfiðleikum veldur þegar í gönguna sjálfa í Afríku er komið: þunna loftið og tilheyrandi vanlíðan.

Lesa meira
 

Jónar stuðla að skapandi hugsun grunnskólabarna - 30.4.2007

"Jónar Transport styðja verkefnið okkar rausnarlega með því að flytja tæki og fleira hingað til lands frá Vísindasafni Minnesota í Bandaríkjunum. Jónar hafa styrkt okkur áður á þennan hátt. Fyrirtækið og starfsmenn þess eiga því þakkir skildar," segir Lani Yamamoto, heimspekingur, rithöfundur og einn aðstandenda Hugmyndasmiðjunnar.

Lesa meira
 

Öflugt snjóruðningstæki fyrir Keflavíkurflugvöll - 25.1.2007

Jónar Transport fluttu á dögunum til landsins gríðaröflugt snjóruðningstæki fyrir Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar. Það leysir af hólmi snjóruðningstæki sem verið hefur samfellt í notkun í hálfa öld!

Lesa meira
 

Jónar Transport gefa flutning til landsins á minningardisk um Svandísi Þulu - 17.1.2007

Geisladiskur til minningar um Svandísi Þulu, 5 ára stúlku sem lést í bílslysi í Reykjavík 2. desember síðastliðinn, hefur selst vonum framar og viðbótarupplag er á leiðinni til landsins. Allur ágóði sölunnar rennur í söfnun til stuðnings Nóna Sæ, 8 ára bróður Svandísar Þulu, sem slasaðist alvarlega.

Lesa meira
 

Þjónusta Stillingar.is tekin í notkun - 19.12.2006

Vefur Jóna Transport hefur nú verið uppfærður með það að markmiði að styðja við nýja þjónustu sem Stillingar.is hefur upp á að bjóða. Hugmyndin að baki Stillingar.is snýst um að koma til móts við þarfir þess stóra hóps sem á erfitt með að lesa texta á vefsvæðum; sjónskertir, lesblindir, aldraðir og fleiri. Notendur geta tilgreint á einum stað óskir sínar varðandi liti og leturstillingar sem svo er hægt að virkja á ólíkum vefsvæðum með því að smella á tákn Stillingar.is

Lesa meira
 

Ford Shelby GT500 - 7.12.2006

Tæpum fjörutíu árum eftir að fyrsti Shelby GT500 bíllinn leit dagsins ljós hafa hönnuðurinn Carrol Shelby og bílaframleiðandinn Ford sameinað krafta sína og hannað nýja útgáfu byggða á 2007 árgerðina af Ford Mustang. Nýja týpan er einhver öflugasti verskmiðjuframleiddi Mustang sem Ford hefur framleitt. Ekki er vitað til þess að bíll af þessari týpu og árgerð hafi verið fluttur inn til landsins síðan hann var frumsýndur í vor. Dagurinn í dag var því sögulegur fyrir bílaáhugamenn þar sem fyrsti bíllinn af þessari tegund kom til landsins.

Lesa meira
 

Jónar koma víða við - 6.11.2006

Óhætt er að segja að Jónar komi víða viða en búist var við að yfir sextán hundruð manns myndu koma saman á föstudaginn til þess að setja heimsmet í samveru fólks sem ber sama nafn í heiminum. Eru það synir Jóns, sem útleggst Jones á ensku. Er Jones algengasta ættarnafnið í Wales og ein þeirra sem ætlar að mæta á samkomuna er söngkonan Grace Jones.

Lesa meira
 

Stuð og gleði í kúrekaveislunni - 16.10.2006

Jónar Transport brutu blað í sögu sinni með því að efna til danskennslu fyrir viðskiptavini og aðra gesti í árlegu viðskiptamannaboði 6. október! Rífandi stemning var á samkomunni.

Lesa meira
 

Jónar gáfu flutning á torfærustólum fyrir hreyfihamlaða - 23.8.2006

"Jónar Transport sáu um að flytja alla stólana til landsins endurgjaldslaust og eiga miklar þakkir skildar fyrir að leggja þessu verkefni lið á myndarlegan hátt," segir Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri íþrótta- og útbreiðslusviðs Íþróttasambands fatlaðra, um torfærustóla fyrir hreyfihamlaða sem sáust á götum höfuðborgarinnar í Reykjavíkurmaraþoni 19. ágúst og vöktu verðskuldaða athygli.

Lesa meira
 

Noregur - Nýr samstarfsaðili í flugfrakt - 9.8.2006

Jónar Transport hafa skipt um samstarfsaðila í flugfrakt frá Noregi.

Nýi samstarfsaðilinn heitir Norair Forwarding AS og er í samtökunum WACO, (World Aircargo Organization) eins og margir af helstu samstarfsaðilum Jóna Transport.

Lesa meira
 

Vetnisbíll í flugi - 18.5.2006

"Þægilegur og skemmtilegur bíll", sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þegar hún steig út úr vetnisbíll frá General Motors eftir að hafa ekið hring í miðborginni. GM flutti þennan bíl til Íslands um miðjan maí 2006 til að sýna hann á alþjóðlegum fréttamannafundi í Reykjavík og láta í leiðinni taka myndir af bílnum í íslensku umhverfi til auglýsingar og kynningar um víða veröld.

Lesa meira
 

Nýtt merki, frískleg ímynd - 29.3.2006

Ferskleiki og hreyfing skín af nýju merki Jóna Transport sem fyrirtækið kynnir þessa dagana fyrir viðskiptavinum og landsmönnum öllum. Höfundur þess er Atli Hilmarsson, grafískur hönnuður.

Lesa meira
 

Stærsta hraðsending í sögu Jóna Transport - 9.3.2006

Jónar Transport fluttu inn og afgreiddu núna í vikunni nær 19 tonn af tölvubúnaði fyrir Opin kerfi. Þetta er stærsta hraðsending til landsins sem Jónar hafa annast frá upphafi.

Lesa meira
 

Aðkoma að Vörumiðstöð að Kjalarvogi - 24.2.2006

Þann 1. mars verður tekin í notkun aðkomustýring að Vörumiðstöð Samskipa og Jóna Transport við Kjalarvog.

Aðgangi verður stýrt í gegnum biðraðakerfi við vöruafgreiðslu innflutnings, Vörumiðstöðvar og Jóna Transport við austurhlið. Viðskiptavinur fær úthlutað afgreiðslunúmeri við staur áður en hann ekur upp að afgreiðsludyrum. Ítarlegt ferli að hvorri hlið er að finna í meðfylgjandi bæklingi.

Lesa meira
 

Ég var að kaupa mér flugvél, hvað kostar að flytja hana heim? - 9.1.2006

Jónar Transport fluttu 1 stykki flugvél frá bænum Winchester í Virginíufylki í Bandaríkjunum til Reykjavíkur nú rétt fyrir jól. Vélin stoppar þó stutt við í borginni því henni er ætlað að svífa um loftin blá í nágrenni Egilsstaða í framtíðinni með eiganda sinn Stefán Scheving og félaga hans. Vélin er af gerðinni Piper Tri Pacer árgerð 1955 og rúmar 4 farþega.

Lesa meira
 

Himinsæla með ný ómskoðunartæki - 24.12.2005

"Það má líkja breytingunni við byltingu. Við erum himinsæl með tækin og afar þakklát öllum sem gerðu mögulegt að spítalinn eignaðist þau," segir Kristín Rut Haraldsdóttir, ljósmóðir á fósturgreiningardeild kvennasviðs Landspítala-háskólasjúkrahúss, um þrjú afar fullkomin ómskoðunartæki sem deildin hefur fengið og nokkurra vikna reynsla er komin á.

Lesa meira
 

Fréttatilkynning til innflytjenda vegna úrvinnslugjalds - 21.12.2005

Frá og með 01.01.2006 taka gildi ný ákvæði frá Umhverfisráðuneytinu er varða gjaldtöku á umbúðum utan af vörum sem fluttar eru inn til landsins.

Lesa meira
 

Skipasendingar fyrir jólin - 24.11.2005

Viðskiptavinum Jóna Transport er hér með bent á að vera tímanlega með innkaup fyrir jólin til að ná vöru í skip sem siglir frá Rotterdam 13. desember næstkomandi.

Lesa meira
 

Fréttir úr flugheiminum - 15.11.2005

Bandarísku flugvélasmiðjurnar Boeing eru að hefja framleiðslu á stærri og sparneytnari gerð hinnar þekktu 747 júmbóþotu. Mun þetta bæta stöðu Boeing í samkeppninni við Airbus og tryggja áframhaldandi smíði þessarar sögufrægu flugvélar.

Lesa meira
 

Vetrartími tekur gildi í Evrópu - 1.11.2005

Klukkunni var seinkað um eina klukkustund í Evrópu síðastliðinn sunnudag, 30. október og gengur því nú samkvæmt Greenwich tíma eins og á Íslandi. 

Lesa meira
 

Októberfest að hætti Jóna - 19.10.2005

Starfsmenn Jóna Transport buðu viðskiptavinum og velunnurum fyrirtækisins til veislu fyrstu helgina í október; árlegrar haustsamkomu sem í þetta sinn var "októberhátíð" að bæverskum sið.

Lesa meira
 

Rafrænt ferli í tollskjalagerð hjá Jónum Transport þróast frekar - 13.10.2005

Rafrænt ferli í tollskjalaþjónustu hefur verið í gangi um árabil hjá Jónum Transport, sérstaklega í samskiptum við tollayfirvöld hérlendis. Hins vegar hefur undanfarið átt sér stað frekari þróun í rafrænum samskiptum tolladeildar Jóna Transport og nokkurra viðskiptavina.

Lesa meira
 

Haustfagnaður - 27.9.2005

Árlegur haustfagnaður Jóna Transport verður haldinn föstudagskvöldið 7. október næstkomandi.

Lesa meira
 

Vörur hraðsendar frá Belgíu - 9.9.2005

,,Jónar Transport sömdu í vor við fyrirtækið Fast Forward Freight um hraðþjónustu fyrir sendingar frá Belgíu til Íslands. Skömmu síðar sömdu Jónar við umsvifamikið fyrirtæki hérlendis um allan innflutning þess frá ýmsum stöðum í Belgíu.

Lesa meira
 

Ný þjónustuhandbók útgefin - 7.9.2005

Ný þjónustuhandbók Jóna Transport hefur verið gefin út og verður send viðskiptavinum fyrirtækisins á næstu dögum. Þar er að finna upplýsingar um Jóna Transport og starfsemi fyrirtækisins.

Lesa meira
 

Golfmót Jóna Transport - 30.5.2005

Árlegt golfmót Jóna Transport var haldið á Selsvelli á Flúðum í Hrunamannahreppi, föstudaginn 27. maí.

Lesa meira
 

Knattspyrnumót flutningafélaga - 17.5.2005

Knattspyrnumót flutningafélaganna var haldið í fyrsta skipti þann 29 apríl í Fífunni í Kópavogi þar sem keppt var um Flutningabikarinn. Fyrirkomulagið var þannig að keppt var í 2 fimm liða riðlum þar sem tvö efstu liðin í hvorum riðli léku til úrslita.

Lesa meira
 

Jónar Transport opna sjöttu skrifstofu sína erlendis - 4.5.2005

Nú í byrjun maí 2005 hefja Jónar Transport eigin starfsemi í Moss í Noregi, en um er að ræða 6. skrifstofu félagsins erlendis.

Lesa meira
 

Knattspyrnumót flutningafélaga fyrirhugað næsta föstudag - 27.4.2005

Knattspyrnumót flutningafélaga verður haldið næsta föstudag, 29. apríl frá kl. 21:00 - 24:00 í Fífunni í Kópavogi. Keppni af þessu tagi hefur ekki verið haldin áður en reiknað er með allt að 100 þátttakendum auk áhorfenda og stuðningsmanna liðanna.

Lesa meira
 

Stærsta flugvél heims í loftið í dag - 27.4.2005

Stærsta flugvél sem byggð hefur verið, Airbus A380, mun fara í loftið í fyrsta sinn í dag, ef veður leyfir, í Toulouse í Frakklandi. Vélin fer í loftið frá Toulouse-Blagnac alþjóðlega flugvellinum.

Lesa meira
 

105.000 litlar lirfur inn á öll heimili til styrktar Umhyggju og UNICEF - 20.4.2005

Í næstu viku verður dreift inn á hvert heimili á Íslandi mynddiski (DVD) með Litlu lirfunni ljótu þar sem öllum heimilum á Íslandi verður boðin myndin til kaups. Þetta átak er unnið af Umhyggju - félagi til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland til styrktar starfsemi þeirra samtaka og til góðs fyrir börn, bæði á Íslandi og um heim allan.

Jónar Transport annast og styrkja flutning á diskunum til landsins.

Lesa meira
 

Jónar Transport styrkja verkefnið Orka barnanna - 17.4.2005

Jónar Transport tóku þátt í að styrkja verkefni hreyfilistamannsins Arthur Ganson, Orka barnanna, sem fram fór í húsi Orkuveitunnar 11 - 15. apríl. Jónar Transport studdu Ganson með því að veita aðstoð við flutning á búnaði til landsins.

Lesa meira
 

Fréttir úr flugheiminum - 30.3.2005

Singapore Airlines tekur í notkun á næsta ári flugvél af gerðinni Airbus A380 í farþegaflutningum á flugleiðum sínum, þá fyrstu sinnar tegundar og jafnframt stærstu flugvél sögunnar. Um borð gætu verið yfir 800 farþegar eða 150 tonn af frakt ef svo bæri undir!

Lesa meira
 

Vel heppnuð óvissuferð - 21.3.2005

Jónar Transport fóru í vel heppnaða óvissuferð 19. mars síðastliðinn.

Það var fyrirtækið Concept sem skipulagði herlegheitin í samráði við vel valda fulltrúa Jóna.

Lesa meira
 

Ný skip hjá Samskip - 28.2.2005

Nýtt skip, Helgafell, var afhent stjórnendum Samskipa í Hamborg í Þýskalandi sl. föstudag. Við það tækifæri gaf Arney Guðmundsdóttir, starfsmaður í mötuneyti Samskipa á Íslandi, skipinu nafn. Nafn hennar kom upp úr pottinum í happdrætti sem efnt var til meðal Samskipakvenna um hver skyldi fara til Hamborgar og gefa Helgafellinu nafn.

Lesa meira
 

Vel heppnaðir flutningar - 14.2.2005

Jónar Transport fluttu skrifstofur sínar á nýjan stað um miðjan janúar. Óhætt er að segja að flutningar hafi heppnast vel og gengið snurðulaust fyrir sig, Jóna-starfsmenn hófu störf á nýjum stað eins og ekkert hefði í skorist.

Lesa meira
 

Talið niður í flutning - 16.12.2004

Starfsfólk Jóna telur niður dagana til flutnings skrifstofu í nýtt húsnæði en nýjar skrifstofur við Kjalarvog verða teknar í notkun um miðjan janúar.

Lesa meira
 

Robertino diskurinn í flugi heim á mettíma - 15.12.2004

Nýja hljómplatan Romantica með ítalska undrabarninu Robertino kom í flugfrakt með Jónum Transport nú í byrjun desember.

Lesa meira
 

Flugfrakt - Skrifstofa Jóna Transport í London flytur um set - 1.12.2004

Skrifstofa Jóna Transport í London flutti þann 1. desember í nýtt og glæsilegt húsnæði og breytast þar með heimilisfang, síma- og faxnúmer okkar í Englandi vegna flugsendinga.

Lesa meira
 

Hawai-stemning og haustfagnaður - 15.10.2004

Glaumur og gleði ríkti í alþjóðlegum mannfagnaði Jóna Transport í Vöruhúsi D á Holtabakka um síðustu helgi. Jónafólk hefur til siðs að kalla viðskiptavini sína til fundar við sig á haustin til að gleðjast í góðra vina hópi.

Lesa meira
 

Rausnarlegur stuðningur við Nordisk Panorama - 29.9.2004

"Jónar Transport veittu Nordisk Panorama rausnarlegan stuðning með því að annast flutning hátt í 130 kvikmynda til og frá landinu. Þetta er okkur afar þýðingarmikið, reyndar alveg yndislegt. Þú skalt skila góðri kveðju til starfsmanna Jóna!" segir Eva María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri norrænu stutt- og heimildarmyndahátíðarinnar Nordisk Panorama í Reykjavík.

Lesa meira
 

Sameiginlegu heilsuátaki Jóna lokið í bili - 26.8.2004

Heilsuátaki Jóna Transport sem hófst í maí síðasliðnum er nú lokið. Frábær þáttaka var í átakinu, en allflestir starfsmenn tóku þátt og mæltist framtakið mjög vel fyrir.

Lesa meira
 

Jónar taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni - 23.8.2004

Starfsmenn Jóna Transport ásamt fjölskyldumeðlimum tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni um helgina. Þáttakan var liður í sameiginlegu heilsuátaki starfsmanna sem hefur verið í gangi undanfarna mánuði.

Lesa meira
 

Varahlutur samdægurs frá Danmörku til Eyja með Jónum - 6.8.2004

Starfsmenn Flugfélags Vestmannaeyja eru hæstánægðir með hraðþjónustu Jóna Transport sem þeir kynntust núna í vikunni þegar varahlutur í flugvél var pantaður frá Kaupmannahöfn að morgni og afhentur þeim síðdegis sama dag!

Lesa meira
 

Þeir fiska sem róa - 5.7.2004

Sölu og Markaðsdeild Jóna Transport skellti sér í sjóstangveiðiferð núna í júnílok á Litlafellinu.

Lesa meira
 

Góð þátttaka í gönguferðum Jóna - 16.6.2004

Í tengslum við heilsuátak sem er í gangi hjá Jónum hafa nú þegar verið farnar tvær gönguferðir. Gengið var á Úlfarsfell 15. maí sl. og síðan í Búrfellsgjá og Búrfell í Heiðmörk 24. júní sl.

Lesa meira
 

Velheppnað Golfmót Jóna Transport - 28.5.2004

Árlegt golfmót Jóna Transport var haldið á Garðavelli á Akranesi fimmtudaginn 27. maí. Golfmótið heppnaðist mjög vel en þátttakendur í golfmótinu voru alls 64. Fjórar hressar starfsstúlkur Jóna keyrðu m.a. um völlinn þvers og kruss og buðu mönnum samlokur og veigar góðar.

Lesa meira
 

Heilsuátak með bros á vör - 18.5.2004

Starfsmenn Jóna taka sér heilsutak í sumar, allir sem einn. Þeim, sem ekki hafa stundað líkamsrækt, er ekki lengur til kyrrsetu boðið. Hinir hreyfa sig bara enn meira en venjulega. Markmiðið er að styrkja kroppinn og efla samstöðu og félagsanda með léttleika í fyrirrúmi. Stefnt er svo að því að Jónafólkið hlaupi í fríðum flokkum um götur borgarinnar í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst.

Lesa meira
 

Ný skrifstofa í Bandaríkjunum - 1.5.2004

Jónar Transport efla þjónustu í sjófrakt frá Bandaríkjunum og Kanada og hafa nú opnað skrifstofu undir eigin nafni í Norfolk. Tilgangurinn með opnun nýju skrifstofunnar er að styrkja þjónustu Jóna í sjófrakt frá Bandaríkjunum og skerpa með því á áherslum í starfseminni þar. Með öflugri flutningastýringu og traustu forflutningakerfi í Norður-Ameríku og Kanada í gegnum eigin skrifstofu í Norfolk, hafa Jónar Transport nú bætt þjónustu sína verulega í þessum heimshluta.

Lesa meira
 

Grín og gleði verði drifkraftur Jóna! - 14.4.2004

,,Starfsmenn Jóna Transport þurfa að vera skemmtikraftar í vinnunni alla daga! Það á að vera gaman að tala við ykkur og fá frá ykkur tölvupóst. Allir sækjast eftir ánægjulegum samskiptum''

Lesa meira
 

Klukkunni flýtt, sumartími í Evrópuríkjum - 26.3.2004

Sumartími tekur gildi í lok helgarinnar í Evrópubandalagslöndum og víðar í álfunni þegar klukkunni verður flýtt um eina klukkustund á miðnætti aðfararnótt mánudags 29. mars.

Lesa meira
 

Helgafellinu seinkar um sólarhring af óviðráðanlegum ástæðum - 23.3.2004

MS Helgafell er væntanlegt til Reykjavíkur um hádegi fimmtudaginn 25. mars, sem er einum sólarhring seinna en venjulega.

Lesa meira
 

Upplýsingar vegna hugsanlegra tafa á flugfrakt frá Hong Kong - 2.3.2004

Vegna gríðarlegrar eftirspurnar á flugfrakt frá Austurlöndum fjær er hætta á seinkunum á flugsendingum þaðan

Lesa meira
 

Sporvagnar frá Ítalíu og skipsfarmur af rafmagnsvír til Kárahnjúka - 26.2.2004

Jarðborar, trukkar, tæki, tól og varahlutir, jafnvel sporvagnar. Allt þetta og miklu fleira kemur til kasta Jóna Transport í flutningum hingað til lands á vegum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo á Kárahnjúkasvæðinu.

Lesa meira
 

Tekanna Jóna nefnd til auglýsingaverðlauna - 19.2.2004

Tekanna, sem Jónar Transport hafa gaukað undanfarið að vænlegum og núverandi viðskiptavinum, hefur verið nefnd til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna 2003 í flokknum markpóstur. Íslenska auglýsingastofan framleiddi gripinn.

Lesa meira
 

Þriðjungur starfsfólks eignaðist barn á einu  ári! - 11.2.2004

Jónar Transport eru ekki bara yfirburðafyrirtæki í flutningum heldur líka í frjósemi. Hvorki meira né minna en þriðjungur starfsfólks í aðalstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík eignaðist barn á liðlega einu ári!

Lesa meira
 

Upplýsingar um komutíma MV Partnership - 9.2.2004

Breyting á áætluðum komutíma MV Partnership til landsins.

Lesa meira
 

Upplýsingar vegna bilunar í Helgafelli - 3.2.2004

Vegna bilunar í Helgafelli um síðastliðna helgi hafa Samskip tekið á leigu skip í Rotterdam sem halda mun til Stavanger og taka farminn og flytja til Íslands. 

Lesa meira
 

Kínversku áramótin eru 22. janúar - 20.1.2004

Við bendum viðskiptavinum okkar á að Kínversku áramótin, eru 22. janúar næstkomandi en þá gengur í garð ár apans og ár geitarinnar kveður.

Lesa meira
 

Eitt af stærri útflutningsverkefnum Jóna Transport - 15.1.2004

Jónar Transport höfðu yfirumsjón með lyfjaflutningum Delta þegar 300 milljón töflur af hjartalyfinu Ramipril voru send á markaði í Þýskalandi og Bretlandi dagana 9. og 10 janúar.

Lesa meira
 

Tilkynning til viðskiptavina vegna almenns verkfalls tollstarfsmanna á Ítalíu  föstudaginn, 16.01.04. - 15.1.2004

Vegna almenns verkfalls tollstarfsmanna á Ítalíu á morgun föstudag 16 janúar kann að verða seinkun á
flug- og sjósendingum á vegum Jóna Transport frá Ítalíu.
Viðskiptavinum er hér með bent á þetta gæti valdið töfum á Ítalíu-sendingum til landsins.

Lesa meira
 

Flugfrakt - nýr samstarfsaðili í Bandaríkjunum - 14.1.2004

Jónar Transport hafa tekið upp samstarf við nýjan aðila í flugfrakt í Bandaríkjunum.

Lesa meira
 

Tilkynning til viðskiptavina vegna seinkunar á flugfrakt frá meginlandi Evrópu - 30.10.2003

Af óviðráðanlegum ástæðum verður seinkun á fraktvél Icelandair Cargo sem átti að koma frá Liege í morgun.

Lesa meira
 

Hljóp Hamborgar-maraþonið merktur Jónum Transport - 27.10.2003

Íslandsvinurinn Michael Decker, okkar maður hjá Dachser samstarfsaðila Jóna Transport í Þýskalandi, tók þátt í Hamborgar-maraþoninu fyrr á þessu ári. Michael hefur heimsótt Ísland reglulega undanfarin ár og heilsað upp á ýmsa viðskiptavini Jóna Transport í flugfrakt frá Þýskalandi og er þeim því að góðu kunnur.

Lesa meira
 

10 ára starfsaldurs-viðurkenningar veittar hjá Jónum Transport - 21.10.2003

Jónar Transport hafa á að skipa starfsfólki með mikla reynslu af flutningastarfsemi og þann 10. október síðastliðinn afhenti Kristján Pálsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins, 5 starfsmönnum viðurkenningu fyrir meira en 10 ára starfsaldur.

Lesa meira
 

Verkfall á Ítalíu á föstudag - 20.10.2003

Tilkynning til viðskiptavina vegna almenns verkfalls á Ítalíu næstkomandi föstudag, 24.10.03.

Lesa meira
 

Haustfagnaður Jóna Transport 2003  - 5.10.2003

Mikið var um dýrðir þegar árlegur haustfagnaður Jóna Transport var haldinn þann 26. september síðastliðinn. Boðið var haldið í Vöruhúsi D á Holtabakka sem hýsir allar flugsendingar sem koma til landsins á vegum Jóna Transport.  

Lesa meira
 

Ný heimasíða Jóna Transport í loftið - 23.9.2003

Jónar Transport hafa uppfært vefsvæði sitt, bæði útlit og innihald

Lesa meira
 

Búningar sendir með hraði til Íraks - 13.9.2003

Halldór Einarsson, sportvöruframleiðandi hjá Henson í Brautarholti, oft nefndur Henson, brást skjótt við þegar haft var samband við hann á dögunum og hann beðinn um að sauma og gefa búninga á tvö fullskipuð knattspyrnulið sem etja kappi á knattspyrnuleikvanginum í Basra í Írak á miðvikudag í næstu viku.

Lesa meira
 

Jónar Transport taka upp þjónustuskilmála Sambands íslenskra kaupskipaútgerða - 31.8.2003

Jónar Transport hafa ákveðið að þjónustuskilmálar Sambands íslenskra kaupskipaútgerða (SÍK) taki til allrar innlendrar þjónustu félagsins við viðskiptavini þess vegna vöruhúsa og landflutninga, að því marki sem slík þjónusta fellur ekki undir flutningsskilmála félagsins. Þetta gildir frá og með 1. ágúst 2003.

Lesa meira
 

Skóflustunga að nýju og glæsilegu húsnæði - 20.8.2003

Þrjúhundruð starfsmenn Samskipa, Jóna Transport og Landflutninga tóku í gær fyrstu skóflustunguna að nýju og glæsilegu húsnæði við Kjalarvog í Reykjavík.

Lesa meira
 

Opna Jónar Transport golfmótið á Nesvellinum - 17.7.2003

Sunnudaginn 6. júní var opna Jónar Transport mótið haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Mikil aðsókn var í mótið þar sem til leiks voru skráðir 111 aðilar en í mótum sem þessu komast yfirleitt ekki fleiri að en 120.

Lesa meira
 

Fréttaflutningur Jóna - 2.2.2003

Fyrsta tölublað 2003 af fréttabréfi Jóna Transport er komið út. Það ber nafnið Fréttaflutningur og þar segir af stöðugri markaðssókn fyrirtækisins, nýjum samningi Jóna við flutningsmiðlunarfyrirtækið Traffic BT sem tryggir enn hraðari sendingar frá Evrópu. Þar er einnig sagt frá nýrri skrifstofu Jóna í Svíþjóð en flutningar til og frá Svíþjóð hafa aukist verulega á síðustu mánuðum og misserum.

Lesa meira
 

Jónar Express - Nýr valkostur í hraðflutningum - 18.12.2002

Frá og með 1. janúar 2003 munu JÓNAR TRANSPORT bjóða viðskiptavinum sínum nýjan möguleika í hraðflutningum, Jónar Express.

Lesa meira
 

Jónar Transport opna sína fjórðu skrifstofu erlendis - 18.12.2002

Í janúar 2003 opna Jónar Transport eigin skrifstofu í Varberg í Svíþjóð sem verður fjórða skrifstofa félagsins erlendis. Fyrir eru eigin skrifstofur reknar í Hollandi, Danmörku og Bretlandi.

Lesa meira
 





Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica