Beint í leiðarkerfi vefsins.
Breytt fyrirkomulag við tollafgreiðslu raf- og rafeindatækja frá 1. janúar 2012.
Umhverfisstofnun vill vekja athygli á breytingu á lögum nr. 55/2003 sem Alþingi samþykkti sl. vor. Frá og með næstu áramótum er tollafgreiðsla raf- og rafeindatækja háð því að innflytjandi sé aðili að skilakerfi.
Seinkun er á komu Arnarfells, skipi Samskipa, í þessari viku sökum djúprar veðurlægðar sem það lenti í um helgina. Skipið fór seinni partinn í dag frá Kollafirði í Færeyjum og er væntanlegt til Reykjavíkur kl. 04:00 aðfaranótt fimmtudags.
Þrír þjónstufulltrúar hafa bæst í starfsmannahópinn það sem af er árinu 2011. Tæplega er reyndar hægt að telja einn þeirra nýjan starfsmann í hefðbundnum skilningi því sá vann hér á árum áður en snýr nú á nýjan leik á „gamla“ staðinn.
Lesa meira
Á fimmtudaginn kemur hefst íslenska sjávarútvegssýningin í tíunda sinn. Þessar sýningar hafa verið haldnar á þriggja ára fresti frá árinu 1984 og lofa stjórnendur sýningarinnar áhugaverðum nýjungum þetta árið. Jónar Transport verða sem fyrr með bás (nr. E31) á sýningunni og bjóðum við öllum þeim sem áhuga hafa á að koma við og spjalla við starfsfólk okkar.
Í dag tekur við hefðbundinn föstudagsopnunartími á skrifstofu Jóna Transport. Skrifstofan lokar nú kl. 16:30 á föstudögum eins og aðra virka daga. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á upplýsingasíðu Jóna Transport.
Svifvængjakonurnar Áslaug Rán Einarsdóttir og Anía Hafdís Björnsdóttir ætla að leggja hálendi Íslands undir væng og fót og í júlímánuði. Þær svífa og ganga til styrktar UN Women á Íslandi og gefa ferðalaginu yfirskriftina: Við viljum gefa konum byr undir báða vængi. Áður svifu þær um veröldina og nutu m.a. stuðnings Jóna Transport til fararinnar.
Lesa meira
Samkvæmt nýrri spá bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing má gera ráð fyrir því að fjöldi fraktflugvéla muni tvöfaldast á næstu 20 árum. Frá þessu er greint á vef Flightglobal en Boeing gerir ráð fyrir því að fjöldi fraktflugvéla fari frá því að vera um 1.760 sem nú er í 3.500 á næstu 20 árum.
Jónar Transport fengu á dögunum öll þrenn verðlaunin sem í boði voru fyrir starfsemi í flugfrakt á þingi WACO, alþjóðlegra samtaka flutningsmiðlara sem fyrirtækið á aðild að (World Air Cargo Organisation, stofnuð 1973).
Lesa meira
Danska félagið Maersk Line hefur samið við skipasmíðastöðvar í Suður-Kóreu um að smíða tíu 400 metra löng skip til að nota í flutningum milli Asíu og Evrópu. Þetta verða langstærstu skip veraldar, hönnuð fyrir að taka allt að 18.000 tuttugu feta gáma í ferð!
Lesa meira