Sjósendingar

Sjósendingar

Í samstarfi við trausta og reynslumikla aðila erlendis ásamt eigin skrifstofum í nokkrum löndum bjóða Jónar Transport upp á örugga skipaflutninga til landsins.

Mið- og suður Evrópa:

Skrifstofa Jóna Transport í Rotterdam, Hollandi, sér um sendingar frá Spáni, Portúgal, Ítalíu, Frakklandi, Sviss, Austurríki, Hollandi, Belgíu og Frakklandi.


Norðurlönd, Eystrasaltslöndin og Pólland:

Jónar Transport reka tvær skrifstofur í Danmörku, Árósum og Kaupmannahöfn sem sjá um sjóflutning frá Danmörku, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Póllandi.
Skrifstofa Jóna Transport í sænska hafnarbænum Varberg sér um allar sjósendingar frá Svíþjóð.
Jónar Transport eru með eigin starfsemi í Moss vegna allra sjósendinga frá Noregi.
Í Finnlandi starfa Jónar með Oy Victor Ek Ab í Helsinki


Bretland:

Skrifstofa Jóna Transport í Immingham sér um allar sjósendingar frá Bretlandi.


Bandaríkin:

Með mánaðarlegum ferðum yfir hafið og forflutningakerfi með 35 móttökustöðvum í Norður - Ameríku og Kanada, hafa Jónar Transport bætt þjónustu sína verulega í þessum heimshluta.


Austurlönd fjær:

Jónar Transport bjóða upp á vikulegar safnsendingar á heilgámum (FCL) og lausavöru (LCL) frá Kína, Taívan, Kóreu, Japan, Taílandi, Indónesíu, Malasíu, Filippseyjum og Víetnam í gegnum meginland Evrópu.

Viðskiptaþjónusta

Viðskiptaþjónusta Jóna Transport finnur hagkvæmustu flutningaleiðina hverju sinni, gerir verðtilboð, sækir vöru til sendanda og kemur henni til viðtakanda auk þess sem viðskiptaþjónustan getur hvenær sem er upplýst hvar vara er stödd.





Erlendar skrifstofur


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu: