Þegar verið er að semja á alþjóðavettvangi er nauðsynlegt að veita jafn mikla athygli söluskilmálum eins og verðinu. Koma má í veg fyrir misskilning með því að nota hina alþjóðlegu viðurkenndu söluskilmála Incoterms 2010.
Í skilmálum Incoterms er útskýrð ábyrgð á afgreiðslu vöru á milli seljanda og kaupanda. Þeir fela einnig í sér útskýringu á hlutverki flutningsmiðlara og tollmiðlara, sem og hvaða aðili ber ábyrgð á sjálfri vörunni á ákveðnum stigum flutnings frá upprunastað til móttökustaðar. Incoterms ber ekki að gefa til kynna heldur taka sérstaklega fram í samningum. Ennfremur er góð venja að hafa nýjustu söluskilmála í samningum, í þessu tilfelli Incoterms 2010.
Incoterms er skipt í tvo flokka:
1. Reglur fyrir alla flutningsmáta
Á við skilmálana EXW (Ex Works [frá upprunastað]), FCA (Free Carrier [frír farmflytjandi]), CPT (Carriage Paid To [flutningur greiddur til]), CIP (Carriage and Insurance Paid To [flutningur og trygging greidd til ]), DAT (Delivered at Terminal [afhent á stöð]), DAP (Delivered at Place [afhent á stað]), and DDP (Delivered Duty Paid [afhent og greiddur tollur])
2. Reglur aðeins fyrir sjó- og vatnaflutninga
Á við skilmálana FAS (Free Alongside Ship [frítt að skipshlið]), FOB (Free on Board [frítt um borð]), CFR (Cost and Freight [kostnaður og farmgjald]), and CIF (Cost Insurance and Freight [kostnaður, trygging og farmgjald]).


