Jón - í hverri höfn
Flugsendingar

Forflutningar

Flutninganet Jóna Transport er þéttriðið og víðfeðmt. Viðurkenndir og reynslumiklir samstarfsaðilar Jóna Transport sækja og taka á móti sendingum hvar sem er í veröldinni og koma vörunni til Íslands eftir fyrirfram ákveðnum leiðum

Almenn flugfrakt

Jónar Transport eru í samstarfi við öll flugfélög sem fljúga til Íslands. Það tryggir viðskiptavinum okkar bestu flutningslausnina hverju sinni.

Hraðsendingar

"Jónar Express" er hraðsendingaþjónusta Jóna Transport. Jónar Express hefur gengið vonum framar enda áreiðanlegir samstarfsaðilar sem koma þar að svo sem Dachser í Þýskalandi, Rhenus í Hollandi og Belgíu auk okkar eigin skrifstofu í Danmörku og Bretlandi.

Viðskiptaþjónusta

Viðskiptaþjónusta Jóna Transport finnur hagkvæmustu flutningaleiðina hverju sinni, gerir verðtilboð, sækir vöru til sendanda og kemur henni til viðtakanda auk þess sem viðskiptaþjónustan getur hvenær sem er upplýst hvar vara er stödd.

Beiðni um að safna saman sendingum

Samstarfsaðilar Jóna Transport í London og París bjóða viðskiptavinum upp á þann möguleika að pöntunum þeirra sé safnað saman í eina sendingu. Með þessu móti er hægt að lækka sendingarkostnað sem annars myndi fylgja hverri sendingu. Það eina sem þarf að gera er að fylla út eftirfarandi eyðublað og senda á viðkomandi skrifstofu.

Eyðublað fyrir London

Eyðublað fyrir París

Senda grein




Erlendar skrifstofur

Leita á vefnum


Finna starfsmenn



Language

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica